upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir ræðu hans um málið sem við erum með til umfjöllunar, nefndarálit með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um upptöku samræmdrar vísitölu, þ.e. breytingartillögur frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd.
Hv. þingmaður er í nefndinni og gerði hér mjög vel grein fyrir fyrirvara sínum við málið sem hann styður annars. Sá fyrirvari snýr að verðtryggingu. Ég ætla að spyrja hv. þingmann varðandi það að banna verðtryggingu, koma henni fyrir kattarnef. Verið hafa ólík sjónarmið í gegnum tíðina um þessa blessuðu verðtryggingu, það fyrirkomulag sem við höfum á því að reikna vexti á húsnæðislán meðal annars. Ég er sammála hv. þingmanni um að það er engin ástæða til að banna verðtryggingu eða að banna alfarið verðtryggða fjármálagerninga. Það verður hins vegar að gæta að, sem hv. þingmaður m.a. kom inn á í ræðu sinni, væginu á milli viðsemjenda, þ.e. þekkingunni, sem er öll á hendi þess sem veitir lánið, sem er síðan svo misjöfn hjá þeim sem tekur lánið. Það er ákveðin neytendavernd að kalla vextina sínu rétta nafni, að tala ekki um verðtryggingu og binda það við einhverjar almennar og breytilegar verðlagshækkanir, heldur að tala bara um vexti. Þar með breytum við fyrirkomulaginu.
Ég vil biðja hv. þingmann um að bregðast við þessu sjónarmiði.