148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

frumvarp um tollkvóta á osta.

[14:20]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég má til með að koma hér upp og taka undir með hv. kollega mínum, sérstaklega hvað varðar málaþurrð. Fyrst við erum að telja upp málin sem brýn eru og munu ekki klárast fyrir þinghlé verð ég að minnast á heildarendurskoðun laga um uppreista æru. Eins og þingmönnum er mögulega kunnugt hefði þurft að endurskoða þau fyrir sveitarstjórnarkosningar til þess að einstaklingar sem hefðu hlotið refsidóm gætu mögulega fengið kjörgengi.

Við vitum að það brýtur á mannréttindum viðkomandi einstaklinga að um ótímabundna sviptingu kjörgengis sé að ræða og þótti það mikið forgangsatriði að koma þessu máli í lag fyrir nokkrum mánuðum. Mögulega er þetta — eins og með önnur mál sem minnst hefur verið á hér, og þá sérstaklega tollamálið og þetta mál — mál sem ríkisstjórninni finnst óþægilegt og langar ekkert sérstaklega mikið að tala um í samhengi við kosningar og leyfir þar af leiðandi að detta niður til þess að það verði ekki of mikið í umræðunni. Ég leyfi mér þá að minna á það hér að enn hefur ekki verið staðið við þetta og með því eru mannréttindi fanga virt að vettugi.