frumvarp um tollkvóta á osta.
Herra forseti. Ég kem hér vegna þessarar umræðu sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hóf og hafði verulegar áhyggjur af því að flytja ætti inn einhver ósköp af sérostum sem ekki væru komnir á dagskrá. Þá segi ég bara: Hvers vegna er verið að hafa þessar áhyggjur? Hér er allt að fyllast af sérostum, það eru að koma 230 tonn til landsins frá Evrópusambandinu í boði Framsóknarflokksins, sem hefur nú talið sig vera sérstakan talsmann bænda, og í boði Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins.
Á sama tíma er ekkert rætt um hagsmuni bænda og engar mótvægisaðgerðir. Sérostamarkaðurinn á Íslandi er 240 tonn. Þau eru framleidd í Búðardal, þar eru 25 manns sem vinna við það. Þetta kemur allt til með að hverfa vegna þess að það er svo ægilega brýnt að fá hingað sérosta frá Evrópusambandinu. Ég skil ekki þessar áhyggjur, herra forseti.