148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

frumvarp um tollkvóta á osta.

[14:27]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar bara til að biðja hæstv. dómsmálaráðherra einlæglega um að beita sér fyrir því að frumvarpið um almennu gagnaverndarreglugerðina komi á dagskrá á morgun svo að hægt verði að halda stuttan nefndarfund í kjölfarið þar sem það yrði sent út til umsagnar.

Án þess að ætla að skamma hæstv. dómsmálaráðherra væri þetta sennilega það mikilvægasta sem gerst gæti til þess að við gætum vandað til verka í lok þessa mánaðar þegar þingfundir hefjast aftur, eftir 25. maí; að fyrir liggi eins margar og vel unnar umsagnir frá ytri aðilum og mögulegt er. Það myndi hjálpa málinu mjög mikið. Þess vegna hvet ég hæstv. dómsmálaráðherra til þess að reyna að leggja sitt af mörkum til að málið komist inn á þingfund á morgun.