frumvarp um tollkvóta á osta.
Herra forseti. Þetta er harla merkilegt þegar við ræðum um neytendur og bændur og við ræðum um gerða samninga, að þá fer það einhvern veginn alltaf þannig að hagsmunir neytenda eru látnir sitja á hakanum.
Hér er talað um mótvægisaðgerðir og í hverju felast þær? Þær felast í því að koma í veg fyrir að neytendur njóti ávaxta af þeim samningum sem gerðir hafa verið. Gott dæmi eru tilraunir stjórnvalda núna til þess að draga mjög úr innflutningi á kjöti samkvæmt samningum, með því að það eigi að telja bein með nautalundinni þegar hún er flutt inn og þar af leiðandi verður minna flutt inn af kjöti.
Ég bíð nú eiginlega bara eftir hugmyndaauðginni þegar þarf að flytja inn þessa osta að lokum, hvort það verður ekki reynt að setja inn fallþunga þeirra dýra sem mjólkin kom úr til þess að reyna að draga aðeins úr þessum gífurlega innflutningi sem verður.