148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

svar við fyrirspurn.

[15:06]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Það hefur borið við að ráðherrar skili svörum við fyrirspurnum þingmanna seint og illa. Í dag erum við að fá í hendur svar við fyrirspurn sem var lögð fram 20. febrúar sl. um seldar fullnustueignir í eigu Íbúðalánasjóðs og svarið er fátæklegt. Þar er ekki að finna upplýsingar um þá sem keyptu, hvorki einstaklinga né fyrirtæki, eins og fyrirspurnin hafði gert ráð fyrir. Í svarinu segir, með leyfi forseta:

„Varðandi nánari tilgreiningu á kaupendum er nú unnið að því að afla álits Persónuverndar …“

Núna, í maí. Fyrirspurnin var lögð fram 20. febrúar sl. Hvað hafa menn í ráðuneytinu verið að gera allan þennan tíma? Ef vafi lék á um þetta, af hverju í ósköpunum var ekki búið að ganga úr skugga um hvort Persónuvernd þyrfti að koma til skjalanna eða ekki? Hér er um að ræða upplýsingar sem er þinglýst hjá sýslumönnum. Þetta eru opinberar upplýsingar. Hér er um að ræða eignir sem er verið að selja sem ríkið á, sem Íbúðalánasjóður átti. Hvers vegna þessa leynd? Hvaða persónur er verið að vernda?