148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

svar við fyrirspurn.

[15:08]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég hef beðið í rúma þrjá mánuði eftir svari frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Ég bað um skrifleg svör varðandi Panama-skjölin og úrvinnslu þeirra en eins og hv. þingmenn muna væntanlega áttum við heimsmet í fjölda fulltrúa í Panama-skjölunum og Norðurlandamet. Við vitum ekkert hvernig gengur að vinna úr skjölunum og hvort við getum ekki líka slegið met þar. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra lét okkur líka bíða eftir skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum. Spurningin er: Hvers vegna í ósköpunum stendur á þessu svari? Hvað tefur?

Ég vil biðja hæstv. forseta að aðstoða okkur þingmenn í því að reka á eftir svörum. Rúmir þrír mánuðir hljóta að vera meira en nægur tími til að svara einföldum spurningum.