svar við fyrirspurn.
Herra forseti. Ég kom hingað upp til að taka undir með þeim sem hér hafa talað. Þetta er auðvitað ótrúlega áhugavert sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson las upp fyrir okkur, þ.e. að þetta er að fara í verri farveg þrátt fyrir að ríkisstjórnin, eins og hér hefur margoft komið fram, hafi boðað sérstaklega í stjórnarsáttmálanum að auka ætti veg Alþingis og bæta samvinnuna.
Ég vil þó sérstaklega lýsa áhyggjum af því að það dragist að svara fyrirspurn hv. þingkonu Oddnýjar Harðardóttur varðandi úrvinnslu úr Panama-skjölunum. Hér er ekki um neitt venjulegt mál að ræða. Um er að ræða atriði sem hefur í rauninni skapað mikla gjá milli almennings og þeirra sem eru moldríkir og hafa getað nýtt sér alls konar undanskot og leiðir. Það næst aldrei friður í samfélaginu fyrr en við tökum (Forseti hringir.) þetta mál upp.
Ég minni á að forsætisráðherra (Forseti hringir.) er verkstjóri í þessari ríkisstjórn. Hún talaði mikið um þetta á síðasta kjörtímabili (Forseti hringir.) og hún hlýtur að taka í hnakkadrambið á hæstv. fjármálaráðherra og biðja hann að svara.