148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

svar við fyrirspurn.

[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka fyrir ágæta fundarstjórn. Ég tel mjög mikilvægt að við ræðum þessa stöðu í forsætisnefnd þingsins. Mér finnst þó rétt að minna á að á þessu þingi hafa komið fram 316 fyrirspurnir til skriflegs svars, sem er vafalaust töluvert meiri fjöldi en við höfum séð á fyrri þingum. Af þeim hefur 206 verið svarað. Ég sé á þeim málum sem hefur verið útbýtt að hér eru a.m.k. 30 svör frá ráðherrum.

Hv. þingmenn kvarta undan skorti á dagskrárefni. Hér liggja inni nokkrar fyrirspurnir til munnlegs svars á þá sem hér stendur. Ég bauðst til að vera hér og svara þeim en hv. þingmenn voru því miður uppteknir og gátu ekki mætt. Ég vonast til að við náum þeim fyrirspurnatíma næsta mánudag. Að sjálfsögðu þurfa þingmenn líka stundum að vera annars staðar en mér finnst mikilvægt að bera af þær sakir að ráðherrar hafi ekki verið reiðubúnir að mæta hér til að svara fyrirspurnum í dag.