persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Það var margt áhugavert í ræðu hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar, sérstaklega áhyggjur varðandi 45. gr. til og með 48. gr. þar sem fjallað er um refsirammana. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður óttist að með svona stórum refsiramma sé meðalhófsreglu ógnað. Ég þekki svolítið til þess þegar þetta mál var í þróun í Brussel og þekki margt af því fólki sem leitaði í gegnum Evrópuþingið og veit að það var svolítið þar verið að hugsa á þann veg að refsiramminn væri gerður, og sérstaklega sektarfjárhæðir væru gerðar svona víðtækar til þess að geta tekið á risavöxnum fyrirtækjum sem eru jafnvel með árstekjur upp á hundrað milljarða kr. sem þekkist náttúrlega ekki hér á Íslandi. En aftur á móti er hugsunin auðvitað sú að þetta ætti að vera notað innan eðlilegra marka.
Komið hafa upp tilfelli á Íslandi, eins og t.d. þegar SMS-gagnagrunnur Vodafone lak hérna um árið, þar sem hefði átt samkvæmt þessu frumvarpi að beita mjög háum sektum. En er ekki líklegt að Persónuvernd eða það stjórnvald sem fer með þetta sektarvald myndi beita sektum í hóflegu mæli og fylgja meðalhófsreglu, vegna þess að það er ákveðið grunnprinsipp í allri okkar löggjöf?