fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég vil í andsvari mínu einnig vekja athygli á sameiginlegum ábendingum allra nefndarmanna í fjárlaganefnd. Ég held að við verðum að taka mjög gott og jákvætt skref hvað það varðar að við vinnum aðeins meira þvert yfir salinn.
Ég vil engu að síður gagnrýna meiri hlutann í ljósi þess að meiri hluti fjárlaganefndar gerir engar efnislegar breytingar á fjármálaáætluninni. Sameiginlegar ábendingar okkar lúta fyrst og fremst að uppbyggingu á framsetningu, sem er góðra gjalda vert, en meiri hluti nefndarinnar leggur ekki til neinar efnislegar breytingar á fjármálaáætlun sem er upp á tæpa 5.000 milljarða. Meiri hlutinn er því tilbúinn að kvitta upp á fjármálaáætlunina eins og hún kemur frá ráðuneytinu. Mér finnst ekki vera góður bragur á því í ljósi þess að við fengum fjölmargar efnislegar athugasemdir, við fengum yfir 40 umsagnir, margar hverjar góðar. Þess vegna er það svolítið sérkennilegt vegna þess að við höfum verið að tala um að lyfta eigi Alþingi upp. Löggjafarvaldið er hérna megin í salnum, en ekki þarna megin. Af hverju treystir meiri hlutinn sér ekki til að gera eina einustu breytingu á 5.000 milljarða áætlun? Þar er ekki krónu hnikað til.
Hér erum við að tala um fjármálaáætlun. Fyrir stuttu töluðum við um fjármálastefnu. Þá gerði nefndin heldur ekki neinar breytingar. Hvers konar pólitík er það að kvitta einfaldlega upp á það sem hæstv. fjármálaráðherra ber á borð?
Síðan langar mig að rifja upp að þegar fjárlögin sjálf voru afgreidd í desember gerði meiri hluti fjárlaganefndar einungis 0,2% breytingu. Eins góður andi og er í fjárlaganefndinni, og ég vil hrósa formanni nefndarinnar sérstaklega fyrir það, eru ótrúleg vonbrigði að við sjáum ekki neinar efnislegar breytingar á málefnasviðunum, á römmunum sem hér er um að ræða.
Mig langar að spyrja hv. formann nefndarinnar: Hvernig stendur á því að hann treystir sér ekki með sinn meiri hluta að gera breytingar á jafn stórri og viðamikilli áætlun og raun ber vitni?