stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Kæru Íslendingar. Í þessari viku mun einn Íslendingur deyja vegna ofneyslu lyfja. Í þessari viku mun einn Íslendingur fremja sjálfsvíg. Í þessari viku búa 6.000 íslensk börn við fátækt og í þessari viku búa um 100 eldri borgarar á spítalanum því að önnur úrræði eru ekki fyrir hendi.
Þetta er sorglegur vitnisburður um annars ágætt samfélag.
Þetta þarf ekki að vera svona. Við erum einungis 350.000 á þessari eyju og við erum 11. ríkasta land í heimi. Við þurfum ekki að láta eldri borgara búa við óvissu og bág kjör. Við þurfum ekki að refsa öryrkjum fyrir að vinna. Við þurfum ekki að setja minni fjármuni í háskólana okkar en það sem nágrannaþjóðir okkar gera.
Við þurfum ekki að láta ljósmæður fara í kjaradeilu. Við þurfum ekki að hafa samfélag þar sem ríkasta 1% landsmanna á meira en 80% þjóðarinnar.
Við þurfum ekki að hafa bæjarstjórann í Þorlákshöfn á hærri launum en borgarstjórann í London. Við þurfum ekki að lækka veiðileyfagjöld helmingi meira en það sem stendur til að verja í hækkun persónuafsláttar fólks.
Og við þurfum ekki að vera eitt dýrasta land í heimi.
Kæru Íslendingar. Þetta er ekki spennandi ríkisstjórn, enda hefur stuðningur við hana hrunið á methraða. Þetta er ríkisstjórn sérhagsmuna og stólakaupa. Fá prinsipp eru hjá ríkisstjórninni, hvort sem litið er til hvalveiða, kjaradeilu ljósmæðra, skipunar dómara, utanríkisstefnu eða velferðarmála.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fá sjúkrahúsin, skólarnir og lögreglan minna en það sem þörf er á. Enn verða eldri borgarar og sjúklingar á biðlistum en þið hafið mörg hver kynnst því að þurfa að bíða eftir eðlilegum úrræðum fyrir ykkur sjálf eða aldraða foreldra ykkar og þá er sáralítil aðstoð við alzheimersjúklinga í okkar ríka samfélagi.
Enn eru meðferðarúrræði, jafnvel fyrir börnin okkar, af of skornum skammti og enn þá er húsnæði fyrir ungt fólk allt of dýrt. Hins vegar er ljóst í fjárlagafrumvarpinu að stórútgerðarmenn þurfa ekki að fara í mikla kjaradeilu við þessa ríkisstjórn eins og ljósmæður þurftu að gera.
Kæru Íslendingar. Komist Samfylkingin til valda lofum við því að breyta þessu samfélagi til batnaðar fyrir venjulegt fólk, ekki bara fyrir suma eins og þessi ríkisstjórn virðist gera. Samfylkingin mun hlúa að eldri borgurum, öryrkjum og að unga fólkinu í þessu landi.
Samfylkingin mun aldrei sætta sig við samfélag þar sem einn Íslendingur deyr á viku vegna ofneyslu lyfja. Samfylkingin vill burt með verðtrygginguna og háa vexti en það gerist best með nýjum gjaldmiðli. Samfylkingin vill nýja stjórnarskrá fólksins og berjast gegn alþjóðlegum fasisma og þröngsýni. Samfylkingin vill setja hagsmuni neytenda, nýsköpunar og smáfyrirtækja í forgrunn en ekki hagsmuni Mjólkursamsölunnar og stórútgerðar. Og þá vill Samfylkingin frjálst samfélag þar sem frelsi fjármagnsins hefur ekki forgang heldur frelsi frá fátækt.
Kæru Íslendingar. Við höfum allt til alls í landinu okkar ef við viljum. Hættum að dekra við sérhagsmuni og sjálftökuliðið eins og þessi ríkisstjórn gerir. Hlúum að hinum venjulega Íslendingi og gerum líf hans og hennar auðveldara og ódýrara. Til þess eru almennileg stjórnvöld. Þessi ríkisstjórn er það hins vegar ekki.