fjárlög 2019.
Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talar um stórkostlegan árangur. Lítum aðeins betur á fjárlagafrumvarpið.
Þeir fjármunir sem eiga að renna til öryrkja duga einungis fyrir þriðjungi af því sem það kostar að afnema hina svokölluðu krónu á móti krónu skerðingu. Aukningin til aldraðra er fyrst og fremst vegna fjölgunar í þeim hópi. Það er engin stórsókn til að mæta bágum kjörum til þess hóps. Enn og aftur sjáum við því að öryrkjar og eldri borgarar þurfa að bíða enn eitt árið eftir réttlæti og nauðsynlegum kjarabótum.
Háskólarnir, lítum á þá. Þeir fá enn þá helmingi minna en það sem var lofað í stjórnarsáttmálanum. Og framhaldsskólarnir, lítum á þá. Samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi er lækkun á framlagi til þeirra á milli ára.
Lítum á sjúkrahúsþjónustuna. Hún fær 2,5 milljarða. Gott og vel, en það er rúmlega helmingi minna en það sem forsvarsmenn Landspítalans sögðu fyrir nokkrum mánuðum að spítalinn þyrfti bara til að tryggja lágmarksþjónustu.
Aftur talar ráðherrann um forgangsröðun. Það er sérkennileg forgangsröðun fyrir þessa þjóð að sjá að lækka á veiðileyfagjöld milli ára um helmingi hærri upphæð en það sem þessi ríkisstjórn tímir að setja í hækkun persónuafsláttarins sem er 500 kr. — 500 kr. eru viðbótin sem þessi ríkisstjórn er tilbúin að hækka persónuafsláttinn um umfram verðlag.
Að lokum langar mig að spyrja ráðherra aðeins um gengi krónunnar. Hún er núna í frjálsu falli. Hún hrundi sérstaklega mikið eftir að þetta frumvarp var kynnt af hálfu ráðherra. Við bentum sérstaklega á það þegar við vorum að afgreiða fjármálaáætlunina. Í fjármálaáætluninni, sem er til fimm ára, er gert ráð fyrir óbreyttu raungengi næstu fimm árin. Einn sérfræðingur kom til fjárlaganefndar. Hann sagði: Á hverju voru menn eiginlega þegar þeir ákváðu að gera ráð fyrir óbreyttu gengi í fimm ár?
Gengi krónunnar hefur bein áhrif á skatttekjur einkaneyslu, verðbólgu o.s.frv. þannig að meginforsenda áætlunarinnar og frumvarpsins er nú þegar fallin. Enginn gjaldmiðill innan OECD hefur sveiflast jafn mikið og íslenska krónan undanfarin 15 ár. (Forseti hringir.) Nú er rússíbanareið krónunnar hafin enn á ný.
Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær er eiginlega komið nóg af þessum gjaldmiðli sem gagnast einungis mjög þröngum hópi fjármagnseigenda?