149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[13:18]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar og gaman að heyra að hann telji mikilvægi nýsköpunar í landbúnaði þetta mikið þótt mér finnist reyndar ekki fara mjög fyrir þessum metnaði í fjárlagafrumvarpinu 2019, hvorki í orði né í tölum. En það eru gríðarleg tækifæri fyrir innlenda matvælaframleiðslu og þróun ýmissa sérvara með auknum ferðamannastraumi til Íslands sem dæmi. Síðustu ár og raunar áratugi hefur átt sér stað eftirtektarverð þróun nýsköpunar í sjávarútvegi sem hefur, eins og hæstv. ráðherra þekkir manna best, skilað sér í auknum verðmætum, bæði í verðmætari afurðum og í verðmætri þekkingu sem íslensk fyrirtæki hafa svo verið að flytja út um allan heim.

Þetta snertir líka loftslagsmál, eins og hæstv. ráðherra kom inn á sömuleiðis, á svo ótal marga vegu. En það skiptir ekki aðeins máli að minnka kolefnisspor framleiðslunnar hér á landi eins og lagt er til í tillögum ríkisstjórnarinnar um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, heldur er ekki síður mikilvægt að auka framleiðslu hér á landi. Þess saknaði ég í aðgerðaáætluninni, til að mynda á grænmeti og ávöxtum. Það er staðreynd að stórauka þarf matvælaframleiðslu í heiminum. Þar hljótum við að bera nokkra ábyrgð með aðgengi okkar að sjálfbærri orku. Við eigum til að mynda ofgnótt heits vatns og við hljótum að vilja nýta það og getum nýtt þá orku til að framleiða margfalt meira af innlendum matvörum yfir höfuð og minnkað þar með kolefnisspor Íslands í heild þar sem við getum þá þar með flutt minna magn inn sem væri sannarlega í samræmi við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái fyrir sér að hægt væri að koma í meira mæli til móts við til að mynda garðyrkjubændur til að styðja við nýsköpun, ræktun, verðmætari og fjölbreyttari afurðir og fyrir minni tilkostnað, þ.e. með því að tryggja aðgengi þeirra að rafmagni á lægra verði.