149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[15:54]
Horfa

Njörður Sigurðsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er gott að heyra að RÚV verði bætt þessi fjárhæð. Mér fannst áhugavert að heyra útskýringar hæstv. ráðherra á því hvers vegna ekki er að finna stafkrók um það í fjárlagafrumvarpinu að greiðslur úr ríkissjóði til einkarekinna fjölmiðla eigi að koma til framkvæmda strax á næsta ári. Það er auðvitað þannig að fjárlög ráða fjárveitingu ríkisins. Því á að vera hægt að finna upplýsingar um þetta í fjárlagafrumvarpinu en það er ekki.

Af skýringum hæstv. ráðherra má ætla að ekki sé samstaða í ríkisstjórn um tillögu hæstv. ráðherra. Mig langar því að spyrja hvort ekki sé einhugur um tillögu hæstv. ráðherra um stuðning ríkisins við einkarekna fjölmiðla og þar með talið aðgerðir til að minnka umsvif Ríkisútvarpsins, hvort það sé ástæðan fyrir því að tillögur hæstv. ráðherra finnast ekki í fjárlagafrumvarpinu.