fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns, innleiðingin á persónuverndarlöggjöfinni hefur tekið talsverðan tíma og þetta er mikil vinna. Ég viðurkenni fúslega sem ráðherra málaflokksins að við þurfum að aðstoða framhaldsskólastigið við innleiðinguna. Ég hef rætt í mínu ráðuneyti um mikilvægi þess að menn geti nálgast þetta á miðlægan hátt. Ég hef hvatt til samstarfs milli framhaldsskólanna þannig að þeir geti aðstoðað hver annan. Mér er ljúft og skylt að greina frá því að það er hugur ráðherrans að aðstoða skólana betur hvað þetta varðar.
Eins hef ég heyrt þetta með skjalavörsluna. Það er afar brýnt vegna þess að framhaldsskólastigið hefur tekið miklum breytingum eins og með styttingunni. Annað sem við þurfum að skoða þegar við lítum á framhaldsskólastigið er áhrif þessarar styttingar. Mér eru sérstaklega hugleikin áhrifin á verk-, iðn- og starfsnámið vegna þess að menn hafa tekið á því kannski á svolítið annan hátt en bóklega náminu. Ég fylgist mjög vel með því og það er mikill hugur í okkur að vel takist til.
Varðandi reiknilíkanið er ég mjög ánægð með að við getum kynnt breytt reiknilíkan þannig að það sé verið að miða við nemandann en ekki hverjir þreyta prófið. Þá er meiri vissa í fjármögnun framhaldsskólastigsins. Eins og kom fram í framsöguræðu minni erum við að tala um 12% aukningu á hvern nemanda á framhaldsskólastiginu. Allt tal um að við værum að minnka og skera niður á framhaldsskólastiginu er bara ekki rétt og þess vegna er mjög brýnt að það komi fram hér.