fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Það er enn og aftur ánægjulegt að hv. þingmaður lýsi yfir áhyggjum af stöðu löggæslumála og mönnun lögreglunnar á götum úti — hún hefur reynslu af afskiptum lögreglunnar við borgarana, ekki síst í búsáhaldabyltingunni. Það var einmitt í kjölfarið á þeirri byltingu sem farið var í að skera niður löggæsluna svo um munaði í algjörri andstöðu við a.m.k. afstöðu þeirrar sem hér stendur og alls Sjálfstæðisflokksins. Ég lét taka saman fyrir skemmstu þróun útgjalda til löggæslumála allt aftur til ársins 2007. Þá sést einmitt þessi niðurskurður sem vinstri stjórnin stóð fyrir mitt í búsáhaldabyltingunni, sem hv. þingmaður lét ekki fram hjá sér fara með eftirminnilegum hætti og hafði samskipti við lögregluna í þeim efnum.
Um leið og Sjálfstæðisflokknum var falin aftur umsjón með þessum mikilvæga málaflokki, þessari grunnstoð þjóðfélagsins, árin 2013 og 2014 sést að orðið hefur gríðarleg aukning fjárheimilda til löggæslu; svo mikil að hún hefur bara ekki verið meiri svo langt aftur sem augað eygir og ég er hér með töfluna. Jafnvel á verðlagi ársins í ár eru fjárheimildir til lögreglunnar komnar verulega fram úr fjárheimildum sem löggæslan hafði árið 2007, á því herrans ánægjulega ári 2007 sem og 2008. 2008 voru það 12,6 milljarðar en við leggjum til að fjárheimildir lögreglunnar fyrir næsta ár verði 16,5 milljarðar. Það er gríðarleg aukning.
Ég hef að sjálfsögðu áhyggjur af því ef lögreglan getur ekki mannað sínar stöður. Við höfum lagt mikla áherslu á það, og ég hef gert það, að tryggja að endurnýjun geti átt sér stað með nýliðun í lögreglunni. Það er endalaust verkefni. Það var farið í sérstakt átak til að fjölga lögreglumönnum í tengslum (Forseti hringir.) við meðferð kynferðisbrota og ég árétta það og ítreka að það er almenn löggæsla; það eru ekki bara lögreglumenn á fæti úti á götu sem eru þar undir. Þar var um að ræða verulega fjölgun á þessu ári.