149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[19:16]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Hæstv. félagsmálaráðherra sagði í ræðu á þessum stað 9. apríl að um sex vikur væru þangað til úrræðið yrði opnað. Var það bara blekking? Félagsmálaráðherra sagði í mars 2017 að hálfum milljarði yrði varið til að reisa meðferðarheimili fyrir börn í fíkniefnaneyslu. Ekkert hefur gerst. Heimilið hefur enn ekki risið. Síðast þegar ég vissi var ekki búið að finna lóð. Þetta er hneisa, hæstv. ráðherra. Við erum að fjalla um börn sem eru á heljarþröm. Það eru ekki ásættanlegar skýringar að ekki sé búið að finna lóð, ef það er rétt, fyrir nýtt meðferðarheimili. Ef við værum að planleggja bensínstöð eða sjoppu væri búið að finna lóð fyrir löngu. Það er enginn hugur í mönnum. Hvað dvelur orminum langa?

Bætt kjör öryrkja eru og hafa verið baráttumál Samfylkingarinnar. Þar ríkir hróplegt óréttlæti. Það er ekki annað sjá í frumvarpinu en að skerðingar verði áfram við lýði þótt einhver skref verði stigin til að telja niður, en þau skref eru stutt og þau eru allt of hæg.

Í umræðunni um kjaralega umgjörð er í sömu andránni gjarnan fjallað um svokallað starfsgetumat. Ég spyr ráðherra: Er við því að búast að starfsgetumat verði að veruleika á komandi fjárlagaári? Á hvaða ári telur ráðherra að sú breyting hafi áhrif á lífskjör öryrkja og hugsanlega á einstaka liði fjárlagafrumvarps?

Lögin um jafnlaunavottun komu til framkvæmda um áramót. Fram hefur komið að mikið vantar upp á að fyrirtæki og stofnanir hafi undirgengist ákvæðin og skammur tími er til stefnu. Eru áætlanir um hvernig því kerfi verður fylgt eftir? Eru opinberar stofnanir undir innleiðingu búnar fjárhagslega?

Á Íslandi búa nú um 36.000 innflytjendur, fólk af erlendu bergi brotið sem auðgar mannlífið og leggur ríkulega til samfélagsins með atvinnuþátttöku, menningu og listum. Það er okkur mikilvægt að ferskir kraftar fái að njóta sín sem best. Til þess þarf samfélagið að styðja, leiðbeina og vísa leiðina (Forseti hringir.) um völundarhús kerfisins. Framlög og nýbreytni í þjónustu við útlendinga og innflytjendur er fátækleg samkvæmt frumvarpinu. Við eigum þó ágætar stofnanir (Forseti hringir.) sem eru reiðubúnar en fjárhagslega vanbúnar. Ég nefni Fjölmenningarsetur og þróunarsjóð innflytjendamála. (Forseti hringir.) Ætlar ráðherra ekki að bæta hér um betur?