149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:52]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið. Það er alltaf mjög gaman að tala við hv. þingmann hér á Alþingi, hann spyr spurninga sem margir aðrir gera ekki.

Sá útblástur gróðurhúsalofttegunda sem kemur frá svartolíu er reyndar ekki stærsta vandamálið okkar. Það eru eiginlega önnur vandamál sem fylgja svartolíunni og hafa meira með loftgæði að gera. En þarna vinna þessi mál saman eins og svo oft er raunin í umhverfismálunum og sérstaklega þegar kemur að loftslagsmálum og loftgæðamálum, þ.e. að þetta fer saman.

Varðandi bílaleigurnar er ég þeirrar skoðunar að ýta þurfi þeim yfir í að nota umhverfisvænni bíla. Það er staðreynd að nýskráningar rafbíla og annarra umhverfisvænni bíla hjá bílaleigum eru um 1% en eru 20% á hinum almenna markaði. Þetta er viðfangsefni sem við þurfum að takast á við með ferðaþjónustunni. Í ráðuneytinu höfum við átt viðræður við ferðaþjónustuna um það hvernig við getum reynt að mæta þessu. Það eru ákveðnir flöskuhálsar í kerfinu, t.d. í Leifsstöð og á nokkrum ferðamannastöðum úti um landið. Með því að setja fjármagn í aukna innviðauppbyggingu erum við vissulega að horfa til þessa sem eins af þeim þáttum.

Ég tel það því ákveðið grundvallaratriði, þegar við förum að líta til þess að skipta fjármagninu nákvæmlega niður fyrir innviðina, að takast á við þetta. Innflutningur bílaleigna er líka það mikill að endursalan, þegar þeir fara aftur á markaðinn, er stór hlutdeild af þeim bílum sem eru á markaði í dag.