sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir ræðuna. Mér heyrist á mörgu að hv. þingmaður sé kannski eitthvað nær mér og Vinstri grænum í skoðunum en þeir þingmenn sem töluðu á undan honum, en hann metur það bara sjálfur. Hins vegar varð honum tíðrætt um pólitíska flötinn á málinu. Það er ljómandi. Það er alveg rétt, Vinstri græn eru auðvitað í pólitísku starfi. Ég veit að hv. þingmaður hefur marglesið stefnuskrár Vinstri grænna í gegnum árin. Þar hefur hann áreiðanlega séð að Vinstri græn eru einmitt það stjórnmálaafl sem vill ekki að opinber þjónusta og almannarekstur sé andlag arðgreiðslna út úr ríkissjóði. Það er kannski það sem hv. þingmaður kallaði ekkert grín. Nei, það er nefnilega þannig. Við viljum það ekki. Við teljum að það sé óeðlilegt, það sé þá eðlilegt að ætli menn að vera í slíkum rekstri séu það ekki hagnaðardrifin fyrirtæki heldur sé þeirri umframgetu sem kann að skapast í þessum fyrirtækjum veitt aftur inn í fyrirtækin til að bæta þjónustuna.
Mig langar að spyrja þingmanninn að einu, annað en að vera bara í léttu spjalli. Hann talaði um að það myndi skorta hvatann hjá fólki til að koma heim eða fara í einkarekstur eða fara í svona þjónustu. En hvar var þá þessi hvataskortur þegar var ákveðið að setja á stofn þrjár einkareknar heilsugæslustöðvar hérna á höfuðborgarsvæðinu og fullt af læknum sótti um?