149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

búvörulög og búnaðarlög.

17. mál
[19:32]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að mæla fyrir þessu frumvarpi. Nú er það þannig að hver sem er getur safnað mjólk, framleitt mjólk, gert hvað sem hann vill með mjólk í dag á Íslandi, alveg eins og hvaða bóndi sem er getur drepið sitt sauðfé, í viðurkenndu sláturhúsi að vísu, og selt það. Það er ekkert sem bannar það. Það er ekkert sem bannar samkeppni í landbúnaði á Íslandi í dag. Það er ekkert sem bannar það í rauninni.

Ég veit að hv. þingmaður hefur rosalega trú á einhverju sem við köllum með þremur stöfum ESB og mig langar að spyrja hann: Hefur hv. þingmaður kynnt sér hvað í samkeppnislögum Evrópusambandsins víkur fyrir sameiginlegu landbúnaðarstefnunni? Í öðru lagi þegar Arla og FrieslandCampina urðu til, danskt og hollenskt risafyrirtæki í landbúnaði, voru gerðar (Forseti hringir.) ákveðnar reglur og samþykktir. Hefur þingmaðurinn kynnt sér hvaða undanþágur eða samþykktir voru gerðar við sameiningu þessara (Forseti hringir.) risafyrirtækja?