149. löggjafarþing — 36. fundur, 22. nóv. 2018.
vistvæn opinber innkaup á matvöru.
43. mál
Herra forseti. Já, þetta er frábær umræða og gott að hv. þingmaður tekur vel í þetta og undir með mér. Ég held að öll þessi umræða sé af hinu góða og styðji við þessa ágætu þingsályktunartillögu sem hér er til umræðu. Ég vona, eins og ég segi, innilega að við horfum fram á bjartari tíma í íslenskum landbúnaði og matvælaframleiðslu á Íslandi.