atvinnustefna á opinberum ferðamannastöðum.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir að hefja þessa sérstöku umræðu í dag. Ég fagna því eiginlega að hún sé tekin fyrir. Fjöldi ferðamanna hefur rúmlega fjórfaldast hér á landi frá árinu 2010 og ljóst er að landið var ekki þá í stakk búið til að taka á móti þeim mikla fjölda. Mikilvægt er því að móta heildstæða stefnu í þeim málum, t.d. hvernig hægt er að taka á móti ferðamönnum um allt land. Ferðamannastaðirnir svokölluðu eru komnir að þolmörkum hvað fjölda varðar. Stuðla þarf að dreifingu ferðamanna um landið allt með markvissum aðgerðum og fjárframlögum til uppbyggingar, þróunar- og kynningarstarfs á fáfarnari svæðum og liður í því er að styðja enn betur við uppbyggingu flugvalla úti á landi, líka með tilliti til millilandaflugs.
Nú fyrr í desember lentu fyrstu millilandaflug vetrarins á Akureyrarflugvelli og stefnt er að því að flytja 4.500 ferðamenn frá Bretlandi til Akureyrar með beinu flugi í vetur. Þetta er gríðarlega góð þróun í ferðamannaþjónustunni fyrir norðan á veturna. Norðurland er í stakk búið til að taka á móti fjölda ferðamanna og því er mikilvægt að við gerum enn betur og byggjum upp það sem þarf til á Akureyri.
Ferðaþjónustan er einn af burðarásum í efnahagslífi Íslands og það verður að styrkja alla innviði. Mikilvægt er að tryggja samvinnu við hagsmunaaðila ásamt því að efla löggæslu og heilbrigðisþjónustu úti á landi.
Ég vil enda hér og segja að ég hvet hæstv. ráðherra til dáða í þeim efnum.