149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[20:16]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, það var alveg hægt að forgangsraða með öðrum hætti. Ég hef lagt mig í líma við að tala um það og mikilvægi þess að forgangsraða í samgöngumál, þar sem þau eru velferðarmál númer eitt. Ég hef gert það síðan ég kom inn á þing fyrir tæpum sex árum. Ég hef bara gert það. Ég vil þá spyrja hv. þingmann hvort það sé þá hluti af tillögum minni hlutans, sem skrifað var undir, að forgangsraða öðruvísi. Og hvernig á þá að forgangsraða þeim tugmilljarða breytingartillögum sem minni hlutinn er með í nefndarálitinu? Á að taka það í formi skattahækkana á atvinnulífið, t.d. útgerðina? Ég tek alveg undir að það hefði verið hægt að forgangsraða í öðru, en ég fór inn á það í ræðu minni að það hefur ekki verið vilji Alþingis undanfarin ár til þess, þó að sumir hefðu viljað.