149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[22:09]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar í síðara andsvari að koma aðeins inn á það sem má næstum líta á sem fyrirvara hv. þingmanns í umræðunni um gjaldtöku á flýtiframkvæmdum. Hún nefndi í ræðu sinni að það gæti verið skynsamlegt að gera ekki fyrir fram ráð fyrir því að allri gjaldtöku yrði hætt af einhverjum tilteknum framkvæmdum, til að mynda í göngum þar sem mikill viðhaldskostnaður væri til lengri tíma og fyrirsjáanlegur kannski í einhverjum öðrum framkvæmdum.

Þá langar mig að inna þingmanninn eftir því hvort hún er þá að hugsa um að þessi gjaldtaka, ef af yrði, væri með einhverjum öðrum hætti, hvort hún væri lægri, hvort við værum að hugsa hana á öðrum forsendum eða hvort jafnvel mætti hugsa sér annað form, hreinlega eitthvert allt annað form, en þessa hefðbundnu gjaldtöku.