149. löggjafarþing — 62. fundur,  5. feb. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.

172. mál
[22:15]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, ég get heils hugar tekið undir það. Ég leit reyndar svo á að breytingartillagan sem ég las hér upp áðan frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar tryggði einmitt þetta, en hún hljóðar svo:

„Unnið verði að samningi við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033 þar sem lögð verði áhersla á nauðsynlegar úrbætur í núverandi almenningssamgöngum, uppbyggingu og rekstur hágæða almenningssamgangna, úrbætur á stofnvegum og gerð hjóla- og göngustíga.“

Ég tek heils hugar undir það og það kom margoft fram í ræðu minni, við verðum að vinna þetta með sveitarfélögunum hérna á svæðinu. Þau hafa lagt mjög mikla vinnu í þetta. Ég myndi jafnvel vilja ganga það langt að velta því upp hvort við ættum að vera með vegagerð höfuðborgarsvæðisins eða samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins, ef út í það er farið. En ég tek heils hugar undir þetta.

Það er auðvitað ekki hægt að fara í þá umbreytingu sem hér um ræðir öðruvísi en að við séum búin að tryggja það hvernig við ætlum að fara í hana, m.a. með borgarlínu en líka aðrar nauðsynlegar stofnvegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Samstarfshópur á vettvangi SSH er að vinna að þessu með Vegagerðinni.

Ég er frekar óþolinmóð, virðulegur forseti, hef starfað í töluverðan tíma á vettvangi er lýtur að svæðisskipulagi og skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu og myndi gjarnan vilja sjá borgarlínu verða að veruleika á morgun, en ég átta mig á því að þetta getur tekið svolítinn tíma. Ég hefði gjarnan viljað að hlutirnir hefðu gerst hraðar, en við erum þó alla vega komin hingað og ég fagna því mjög. Ég mun hér eftir sem hingað til leggja áherslu á það að þetta verði unnið í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Þá langar mig líka að minnast á það sem hv. þm. Logi Einarsson talaði um í ræðunni sinni. Nú er hann formaður Samfylkingarinnar en hann er líka þingmaður landsbyggðarinnar. Mér fannst einmitt mjög gaman þegar hann talaði um mikilvægi þess að landsbyggðin og höfuðborgarsvæðið ynnu saman og hvað það skipti miklu máli fyrir landsbyggðina að höfuðborgarsvæðið væri öflugt, alveg eins og það skiptir miklu máli fyrir okkur á höfuðborgarsvæðinu að landsbyggðin sé öflug. Þannig að borgarlína og samgöngumannvirki á höfuðborgarsvæðinu eru ekki bara mál íbúa á höfuðborgarsvæðinu heldur mál landsbyggðarinnar (Forseti hringir.) allrar og auðvitað öllum þeim sem heimsækja okkur, ferðamönnunum.