149. löggjafarþing — 65. fundur, 7. feb. 2019.
fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
172. mál
Herra forseti. Hér er um tímamótaplagg að ræða. Hér eru boðaðar kerfisbreytingar í samgöngumálum þjóðarinnar þar sem öryggismál eru höfð að leiðarljósi, sérstaklega umferðaröryggismál og flugöryggismál. Hér er horft fram á veginn til langrar framtíðar. Það er einstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í afgreiðslu þessa máls hér í dag.
Hér eru tekin stór framfaraskref vítt og breitt um allt landið.