fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem þegar hafa komið upp. Það er mjög mikilvægt að huga að þessum þætti. Staðreyndin er auðvitað sú að við höfum byggt upp mestalla miðlæga þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og stór hluti af þeirri hagræðingu sem orðið hefur, t.d. í heilbrigðiskerfinu okkar á undanförnum árum, hefur einmitt verið í formi þess að flytja enn frekar þunga slíkrar þjónustu til höfuðborgarsvæðisins. Þá verðum við auðvitað að horfa til þess hvernig við getum létt undir með ferðakostnaði sem m.a. hlýst af þeirri breytingu fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Því styðjum við í Viðreisn það markmið sem hér er lagt fram þó að við séum almennt ekki mjög fylgjandi niðurgreiðslu ríkissjóðs til atvinnugreina. Það verður auðvitað að gæta vandlega að útfærslu þessarar niðurgreiðslu og þeim kostnaði sem af henni hlýst og fjármögnun hennar en við styðjum heils hugar að farið verði af vandvirkni í þetta mál.