149. löggjafarþing — 66. fundur,  18. feb. 2019.

sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum.

[15:47]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (U):

Herra forseti. Ég vil minna á að þessi ráðstöfun hæstv. ráðherra er gerð fyrirvaralaust og m.a. lýsti hv. þm. Páll Magnússon því í ræðu á þingi 30. janúar sl. hvernig hann, sem er 1. þingmaður kjördæmisins, fékk á skotspónum fregnir af þeirri ráðstöfun ráðherrans, sem er samflokksþingmaður hans. Það sætir mikilli furðu að þetta sé gert á þann hátt og ég vil spyrja: Hvers vegna var ekki auglýst tímabundið embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum? Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn? Undir stjórn Sjálfstæðisflokksins hefur verið unnið markvisst að því að leggja niður embætti stjórnsýslu í héraði. Sýslumannsembættin hafa verið lögð niður undir forystu hans og sýnist mér eiga að halda áfram á sömu braut. Ég nefni sem dæmi Vík í Mýrdal, og þetta er ekki allt í mínu kjördæmi, Höfn á Hornafirði, Neskaupstað, Ólafsfjörð, Siglufjörð, Hólmavík, Patreksfjörð, Búðardal og Akranes. Ég gæti nefnt fleiri dæmi. Þetta eru þau embætti sem hafa verið lögð niður undanfarin ár, (Forseti hringir.) á vakt Sjálfstæðisflokksins. Eru það áform hæstv. ráðherra að gera kannski bara eitt sýslumannsembætti á landinu sem verður þá staðsett í Reykjavík? Þeir eru iðnir við að stofnsetja embætti (Forseti hringir.) á höfuðborgarsvæðinu og vil ég nefna nýlegt frumvarp um þjóðarsjóð.