sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa góðu yfirferð yfir þá hagræðingu og þá skynsamlegu ráðstöfun á skattfé sem hefur orðið í tengslum við lokun á einstökum útibúum úti á landi. Hingað til hefur sýslumannsembættum ekki fækkað, haldið er úti þjónustu. Tökum Vestmannaeyjar af því að þær eru sérstaklega til umræðu. Í Vestmannaeyjum hefur ekki nokkurn skapaðan hlut verið dregið úr þjónustu þótt sýslumaðurinn hafi tekið sér tímabundið leyfi frá störfum og sitji hérna í Reykjavík til að vinna fyrir sýslumannaráð sem hefur verið ómannað hingað til, ómannað sýslumannaráð en hefur þó hlutverki að gegna og fær núna starfsmann. Sýslumaðurinn hefur enn þá sína skipun og það kemur ekki til greina að skipa í það embætti eða auglýsa tímabundið. Það þjónar engum tilgangi þegar verið er að skoða öll embættin í heild og verkefnin og verkefnastöðu. Það sem mestu máli skiptir er að þjónustan er algerlega óbreytt í Vestmannaeyjum þótt sýslumaðurinn hafi komið upp á land í sátt og samlyndi við aðra sýslumenn og sýslumannaráð. Þjónustan er algerlega óbreytt og það er það sem mestu máli skiptir.