149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[16:40]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innblásna ræðu og góða yfirferð. Þetta var ræða til að blása kjarki í okkur og þjóðina og um að standa í lappirnar þótt við séu fámenn eyja norður í hafi gagnvart stórum og sterkum aðilum sem eiga mikið af peningum. Fram kom hvernig þetta kom allt saman til á sínum tíma, hver hin sögulega skýring er.

Mig langar að spyrja þingmanninn út í það sem hann endaði á í ræðunni, sem bæði ég hef spurt mig að og þjóðin örugglega líka. Þingmaðurinn talaði um „að leiða líkur að“ í lok ræðu sinnar. Er þingmaðurinn til í að láta okkur vita hvað hann meinar með því og hvað hugsanlega gæti legið að baki? Þetta er stórt spurningarmerki í mínum huga og örugglega margra annarra, af hverju þetta þurfi að koma með slíkri aðferð hérna inn. Það var reynt að lauma því inn á síðasta degi fyrir jól og það er dagsett og sagt að að öðrum kosti muni gerast eitthvað rosalega mikið.

Getur þingmaðurinn róað huga manna með því að leiða að því líkur hvað hugsanlega standi þarna að baki?