meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Auðvitað læðist að manni einmitt þessi grunur, sérstaklega eftir að hafa fylgst með því hvernig þetta mál kom fyrst inn í þingið, þegar gerð var tilraun til að renna því í gegn á síðasta degi þingsins fyrir jólahlé. Hvenær birtist það svo aftur og var smeygt í gegn á sjö mínútum eða sex? Daginn sem forseti Alþingis setti hér allt í uppnám þannig að þingið var nánast óstarfhæft út af einhverri grillu, ólögmætri grillu forsetans sem hann var að keyra í gegn. Sá dagur var valinn til að afgreiða málið á sex mínútum án þess að menn yrðu þess nánast varir. Auðvitað fer mann að gruna þetta. Og gjalddaginn er í dag á þessu ríkisskuldabréfi. Þeir hafa greitt það í síðasta lagi, væntanlega, rétt fyrir lokun markaðar, en það getur vel verið að þeir hafi greitt út í morgun og það hafi bara verið búið að borga út þetta bréf þegar því var haldið fram að það mætti helst ekkert að ræða málið, þyrfti að keyra það í gegn vegna þessarar dagsetningar.