149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[18:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni andsvarið. Það er auðvitað þannig að raunvextir á Íslandi eru með því hæsta sem þekkist í hinum vestræna heimi. Persónulega tel ég það eitt mikilvægasta verkefnið sem stjórnmálin og allt það umhverfi sem að vaxtapólitíkinni kemur þarf að takast á við. Það er auðvitað þannig að 3,5% raunávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna setur ákveðið gólf í heildarlánastabba þeirra útgefenda sem þar eru á ferðinni og á meðan svo er má færa fyrir því rök að skuldsett heimili séu að borga viðbótarinnborgun í lífeyrissjóði sína með þessari mjög svo háu vaxtakröfu sem er á þeim pappírum sem sjóðirnir gefa út. En ég verð að fá að koma að því í ræðu (Forseti hringir.) minni á eftir hvort ég finn leið að því að slá tölu á tjónið, sem mögulega verður ef fram heldur sem horfir.