meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Málið snýst vitanlega um að verið er að liðka til fyrir kröfuhafa, eigendur aflandskróna, til að losa um þá fjármuni. Þeir munu væntanlega í framhaldinu geta fengið greitt eða selt þá, og Seðlabankinn ef við kaupum það, á verði sem er allt of lágt í raun, þ.e. þeir fá allt of mikið fyrir sinn snúð. Þetta eru aðilar sem eru búnir að bíða hvað lengst. Þetta eru þeir sem hafa verið hvað þolinmóðastir og nú á að fara að verðlauna þá.
Það er rétt sem hv. þingmaður segir að við söknum þess og botnum náttúrulega ekkert í því hvers vegna þeir t.d. sem rita undir nefndarálitið eða fylgisþingmenn þeirra koma ekki hér og rökstyðja af hverju málið þarf að fara í gegn. Það hefur enginn gert. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar hélt ræðu en rökstuddi ekki með nokkrum hætti hvers vegna þyrfti að samþykkja málið í dag.