149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[20:17]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er akkúrat málið. Þetta er mergurinn málsins. Við hefðum viljað fá meiri rökstuðning og meiri umræðu um málið, meiri yfirvegun og meiri tíma. Komið hefur fram í ræðum manna í dag að þeir fjármagnseigendur sem eru með fé bundið þarna inni verði ekki fyrir neinu tjóni. Peningarnir verða þarna áfram á þeim vöxtum sem þeir hafa verið. Við sem höfum velt því fyrir okkur metum það þannig að þeir muni ekki verða fyrir tjóni. Það er mergurinn málsins. Ég verð að segja að það er svarið sem ég kem með.