149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[00:37]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Svo virðist vera að vogunarsjóðir vinni svipað og hýenuhópur, þ.e. þeir leiti uppi veikasta hlekkinn í hjörðinni, þann sem dregst aftur úr, og ráðast á hann með alkunnum afleiðingum. Og einhvern veginn dettur manni í hug eða það flökrar að manni að stjórnvöld og Seðlabankinn sérstaklega hafi ekki áttað sig á því við hverja var að eiga. Það vissu þeir sem höfðu staðið í þessari baráttu allt frá 2015 og boðið mönnum upp á kylfu og gulrót, menn vissu að það var ekkert annað sem dygði til þess að koma vogunarsjóðum á rétta braut. Það er engu líkara en að Seðlabankinn sérstaklega og ríkisstjórnin öll sem nú situr og 10 mánaða ríkisstjórnin líka reyndar, hafi bara gjörsamlega farið á taugum og lyppast niður við fyrstu mótbárur.