149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[01:09]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Jú, ég er algjörlega sammála þingmanninum og þakka honum fyrir þetta andsvar. Maður vill fá meiri upplýsingar áður en ákvörðun er tekin. Það kom fram áðan í ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að það lýsti varla miklu stolti hvað umræðan í þessu máli hefur verið snubbótt þangað til að við tókum þetta mál upp í dag í okkar þingflokki, Miðflokknum. Sá tími sem umræðan hafði fengið var teljandi í mínútum. Það væri eitthvað lítið um stolt og kannski töluvert um óbragð eða hálfgerðan móral yfir því að þetta hlyti skemmri skírn.