149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[01:43]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Ég vek athygli á furðulegu ferli þessa máls sem hafði gott upphaf en snerist svo upp í furðuverk. Það eru talsverðir fjármunir undir og tímasetningin núna vekur upp spurningar eins og af hverju svona mikil pressa virðist vera á að keyra málið í gegn.

Við höfum ítrekað kallað eftir því að fá svör við ýmsum spurningum og vonandi getum við fengið svör á fundi hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Ég minni á að keyra átti málið í gegn fyrir jólin án þess að við þingmenn fengjum að sjá frumvarpið.

Ég er með eina spurningu sem hefur ekki látið mig í friði: Hvað sér þingmaðurinn fyrir sér að gerist verði frumvarpið ekki samþykkt? Þetta hefur truflað mig annað slagið í allan dag.