störf þingsins.
Virðulegi forseti. Enn bíður Sjúkrahúsið Vogur eftir því að fá úthlutað því fjármagni sem við töldum að við hefðum verið að veita til starfseminnar þar rétt fyrir jólin. Það var ákall úti í samfélaginu. Tugir einstaklinga höfðu dáið hér ótímabærum dauða en nú er verið að tala um að þetta fjármagn, þessar 150 millj. kr., eigi að deilast niður á 12 mánuði eins og framlagið hefur verið hingað til hvað varðar reksturinn hjá SÁÁ. Það er með ólíkindum að við skulum horfa upp á það í dag, í vaxandi fíkniefnavanda, að bráðaþjónustunni sé sent langt nef og sýnd fyrirlitning eins og raun ber vitni hér og nú. Það á að fara að fækka núna um 400 manns í innlagnir á Sjúkrahúsið Vog á þessu ári. Það er búið að leggja niður göngudeildina á Akureyri. Við erum að tala um bráðavanda ef ég skil það rétt.
Virðulegi forseti. Ég átta mig engan veginn á því hvernig við getum skilið þetta aukafjárframlag sem ákallið var svona hátt eftir öðruvísi en svo að við höfum viljað mæta þeim mikla vanda, þeim ótímabæra dauða og reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til að vera með forvarnir gegn því til að hjálpa fólki að komast í meðferð, til að fá faglega hjálp. Það er staðreynd að hvergi er önnur eins reynsla og þekking til að taka utan um þann mikla vanda sem áfengis- og fíknisjúkdómurinn er en á Sjúkrahúsinu Vogi og hjá því starfsfólki sem þar starfar.
Enn og aftur — hingað mun ég koma hvern einasta dag sem ég mögulega get og kalla eftir því að markmiðinu verði fullnægt. Þó svo að sagt sé að það hafi ekki verið neitt sérstakt markmið með þessari fjárveitingu, og hæstv. heilbrigðisráðherra virðist ætla að útbýta þessu eftir behag, þá breytir það ekki þeirri staðreynd að við vissum öll sem hér erum inni hvert markmiðið var (Forseti hringir.) með þessari aukafjárveitingu til Sjúkrahússins Vogs eins og ég vil kalla það.