149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[20:15]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að frumvörp sem tengjast frjálsri sölu á áfengi hafa yfirleitt komið fram frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Ég er reyndar ekki einn af þeim þingmönnum sem hafa flutt slíkt frumvarp. Ég sagði í ræðu varðandi það á sínum tíma að ég væri hér í þingsal til að hlusta einmitt á umræðuna og átta mig á því nákvæmlega hver skoðun mín væri á þessu máli. Ég verð að segja það sama núna og þá að það er eiginlega mjög erfitt að taka þessa umræðu og láta hana hjálpa sér við að mynda einhverja afstöðu í málinu því að umræðan er ofboðslega mikið í skotgröfunum sitt hvorum megin.

Virðulegi forseti. Ég verð að nefna það út af því að hv. þingmaður segir trekk í trekk að hann haldi að heimilisofbeldistilfellum hafi fjölgað í tengslum við aukna neyslu (Gripið fram í.)að ég leyfi mér að efast stórkostlega um að sú staðhæfing standist. Ég held að fjölgun heimilisofbeldistilfella sem eru tilkynnt og kærð sé fyrst og fremst lögreglunni og breyttu verklagi að þakka, frekar en að aukinni áfengisneyslu sé um að kenna.

Við getum verið sammála um að áfengi er böl. Hv. þingmaður nefndi tóbak og sýnileika hvað það varðar. Við höfum náð mjög miklum árangri í því að fækka þeim sem nýta tóbak, m.a. hefur verið brugðið á það ráð að tóbak er ekki sýnilegt í verslunum, en það er þó selt á markaði og það eru einstaklingar með sínar sjoppur eða stórverslanir eða annað sem fá leyfi til að selja tóbak. Sér hv. þingmaður þá ekki fyrir sér, í ljósi allra þeirra hörmunga sem áfengi kallar yfir okkur, að það sé ástæða til að fara svipaða leið með sölu á áfengi?