viðbrögð ríkisstjórnarinnar við gjaldþroti WOW air.
Forseti. Ríkisstjórnin er búin að hafa tíu mánuði til að fylgjast með WOW. Veruleikinn í dag er auðvitað einn af þeim möguleikum sem lá alltaf fyrir að voru til staðar, voru hugsanlegir. Þess vegna hefði mátt búast við því að ríkisstjórnin væri strax tilbúin með svör, tilbúin með markvissa viðbragðsáætlun strax og gjaldþrotið lá fyrir þannig að hægt væri að svara þessum tæpu 2.000 sem eru atvinnulausir vegna WOW beint og óbeint og lifa nú í óvissu.
Það er ekki þannig að ríkisstjórninni hafi ekki verið haldið við efnið. Við í stjórnarandstöðunni margspurðum og komum með tillögur, m.a. fyrir jól, út af erfiðri stöðu á Suðurnesjunum, heilbrigðisstofnunarinnar, framhaldsskólans o.s.frv. Allar okkar tillögur voru felldar. Allar þær tillögur sem við í stjórnarandstöðunni settum fram út af viðkvæmri stöðu á Suðurnesjum voru felldar. Suðurnesin eru svæði sem mun fá þyngri skell en öll önnur svæði á landinu varðandi flugið. Það var 6% atvinnuleysi fyrir WOW, 3% atvinnuleysi hér á Reykjavíkursvæðinu. Það er verið að setja 80 milljónir, vel gert, í Vinnumálastofnun en bara 15 milljónir á Suðurnesin þegar ástandið er miklu alvarlegra þar. Það verður að segjast eins og er að verkalýðsfélögin voru tilbúin strax í hádeginu daginn eftir með svör og með sína viðbragðsáætlun en ríkisstjórnin ekki.
Þess vegna hljótum við að spyrja, eftir að hafa haft allan þennan tíma til að gera ráð fyrir þessum möguleika: Hvaða ráðstafanir hafa stjórnvöld gert til að hraða t.d. uppgjöri við starfsfólk WOW sem nú er atvinnulaust? Við vitum náttúrlega að það er áfall fyrir hvaða heimili sem er að missa tekjur. Hvaða ákvarðanir og ráðstafanir hafa stjórnvöld gert til að uppgjör Ábyrgðasjóðs launa taki ekki hálft ár eins og við vitum að það gerir jafnan? Hvað hefur verið gert til að flýta ferlinu? Hvaða skilaboð fær fólk sem er í námi og vinnu og er ekki hjá lánasjóðnum? Hvaða skilaboð fær fólk sem er í fæðingarorlofi eða er að fara í fæðingarorlof? Þetta allt hefði verið mjög augljóst og auðvelt að vinna að og hafa skýrt. (Forseti hringir.) Ég spyr: Getur forsætisráðherra sagt hvað verði gert af hálfu stjórnvalda sem hönd á festir annað en að fljúga John og Rose til síns heima?