149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

viðbrögð ríkisstjórnarinnar við gjaldþroti WOW air.

[15:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi upplýsa hv. þingmann að það er stórmál að fljúga John og Rose til síns heima þó að hv. þingmanni kunni ekki að finnast það. Eitt af því sem lönd standa frammi fyrir þegar svona áföll verða í flugrekstri er orðsporsvandi ef ekki gengur vel að koma fólki milli staða. Samgönguráðuneytið stýrði þeirri viðbragðsáætlun og það hefur gengið mjög vel. Hv. þingmaður hefði kannski áhuga á að kynna sér að það er hluti af því sem við höfum verið að kynna okkur í aðdraganda þessa máls, að lönd hafa farið mjög illa á því að sitja uppi með þúsundir strandaglópa þar sem viðbragðsáætlun hefur ekki virkað. Þetta segi ég til upplýsingar hv. þingmönnum sem virðist finnast það léttvægt að koma fólki á milli staða. Það er ekki svo.

Síðan vil ég segja, eins og kom fram í stuttu máli í svari mínu við fyrirspurn hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, að ráðuneyti félagsmála, heilbrigðismála og menntamála eru öll tilbúin með ákveðnar aðgerðir vegna þessa máls. Meðal annars er unnið að því núna að koma til móts við þá sem hafa verið í námi með vinnu og lenda á milli kerfa. Hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra mun eiga fund með þeim aðilum á morgun vegna málsins. Það er merkilegt að þegar ég tók við menntamálaráðuneytinu eftir hrun af hv. þingmanni var einmitt ekki var gert ráð fyrir þeim í kerfinu sem vildu fara aftur í nám og voru atvinnulausir. Þeir duttu allir út af bótum ef þeir vildu fara í nám í framhaldsskóla. Það kom í minn hlut að reyna að laga þá gloppu í kerfinu og það var gert. Mörg þúsund manns sem þá voru atvinnulaus luku námi með vinnu. Auðvitað þarf alltaf að taka á þeim málum þegar þau koma upp og það þurfti ég að gera á sínum tíma, 2009, og þarna eru mismunandi aðstæður, bæði hvað varðar þá sem eru í fæðingarorlofi og námi.

Sömuleiðis hvað varðar heilbrigðismálin — og þetta er eitt af því sem sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum lögðu áherslu á í morgun á ágætum og góðum fundi sem við áttum um þau mál — er mikilvægt að tryggja (Forseti hringir.) aukna þjónustu því að við megum reikna með auknu álagi á þessu svæði þar sem u.þ.b. 150 hafa bæst á atvinnuleysisskrá vegna þessa máls.