149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

loftslagsmál.

758. mál
[17:45]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef fulla trú á hv. umhverfis- og samgöngunefnd og því að henni muni takast að fara vel og ítarlega yfir þetta mál. Ég verð samt að viðurkenna að í ljósi þess að málið er tiltölulega nýlega fram komið hef ég ekki enn lesið allt frumvarpið og greinargerðina. Ég sé að ágætissamráð hefur átt sér stað í gegnum samráðsgáttina okkar þannig að ég geri ráð fyrir því að flestir þeir aðilar sem hafa þekkingu og skoðun á þessu máli hafi kynnt sér það vel. Það er það sem við í þingnefndunum og við þingmenn treystum mjög vel á, þ.e. fagþekkingu aðilanna þarna úti. Ég hygg því að hv. umhverfis- og samgöngunefnd verði fljót að fá frekari upplýsingar og innsýn í málið. Það sem ég vildi leggja áherslu á er að við vinnum alltaf öll okkar mál vel, eðli málsins samkvæmt er það okkar hlutverk, en kannski ekki síst að leggja áherslu á vægi þess að við ræðum meira umhverfis- og loftslagsmál. Eins og ég sagði í ræðu minni er eitt að draga úr losun, annað er að tala um bindinguna en þriðji þátturinn er svo líka að tala um viðbrögð. Það er nokkuð sem ég held að við þurfum að eiga enn betri og meiri umræðu um og þá úti í samfélaginu því að mikið til er þetta á herðum sveitarfélaganna. Ég fagna því mjög að sú umræða sé vakin upp.