skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmönnum kærlega fyrir umræðuna í dag. Ég tek heils hugar undir margt sem þar hefur komið fram eins og að króna á móti krónu frumvarp Pírata komist út úr nefnd og í atkvæðagreiðslu. Einnig að hvergi í fjárhagsáætlunum er gert ráð fyrir að útrýma krónu á móti krónu skerðingunni, eins og hv. þm. Þorsteinn Víglundsson benti á.
Það sem við höfum komist að í dag og er staðreynd er að allir flokkar vilja afnema krónu á móti krónu. Allir flokkar lofuðu fyrir síðustu kosningar að taka út krónu á móti krónu og það eiginlega strax. Þess vegna er óskiljanlegt að það skuli ekki vera gert í dag. Það sem skelfir mig mest í þessu samhengi er að 4 milljarðar eru áætlaðir í þetta en svo var klipinn af því 1,1 milljarður og þá eru komnir 2,9 milljarðar og þeir eru fastir. Hvað þýðir að 4 milljarðar eigi að fara í þetta þegar það kostar sennilega í kringum 12 milljarða að gera þetta? Ég spyr: Hvar er brellan? Vonandi getur ráðherra svarað því hvernig á að afnema krónu á móti krónu skerðingu með 4 milljörðum ef það kostar 12 milljarða?
Ég held að það sé eiginlega grunnsvarið sem við þurfum að fá og hitt líka að það er svolítið skrýtið með hálfan á móti hálfum lífeyri sem ellilífeyrisþegar mega fá að þeir sem þurfa mest á því að halda að geta fengið hálfan á móti hálfum og unnið áfram sem eru með undir 124.000 kr. úr lífeyrissjóði fá ekki en það er búið að setja þetta til hinna sem hafa ekkert með að gera. Það er svona bútasaumur í þessu kerfi okkar sem er alveg skelfilegur. Þetta er orðið svo bútasaumað kerfi og þetta skrímsli er orðið svo mikið að enginn getur fest hendur á því. Þess vegna verðum við að núllstilla, við eigum bara að ganga í það að segja hér og nú: Við núllstillum kerfið, búum til nýtt kerfi, mannlegt sem ber virðingu fyrir réttindum fólks þannig (Forseti hringir.) að það geti lifað með reisn og ekki í sárri fátækt.