149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þm. Ingu Sæland. Þessari mismunun, gagnvart börnum sem eru með skarð í mjúkum gómi, hjá Sjúkratryggingastofnun Íslands verður að linna. Ef stofnunin treystir sér ekki til að framfylgja reglugerð ráðherra, eins og er reyndar ekki í fyrsta skipti í þessum málaflokki, verður Alþingi að grípa inn í og breyta lögum.

Ég ætlaði að ræða hér um rakaskemmdir og myglu, fréttir af því að landlæknisembættið neyðist til að flýja það sem eitt sinn var flaggskip heilbrigðisþjónustu í Reykjavík, Heilsuverndarstöðina. Ég átti hlut að máli sem heilbrigðisráðherra þegar embættið flutti í húsið og það eru mér mikil vonbrigði ef enn og aftur verður engin heilbrigðistengd þjónusta í þessu sögufræga húsi sem illu heilli fór úr opinberri eigu fyrir alllöngu. Það er nú önnur saga.

Fyrir skömmu var líka sagt frá því að um 400 nemendur Fossvogsskóla væru nánast á vergangi þegar skólanum var skyndilega lokað en sem betur fer eru skemmdirnar minni en ætlað var og þar verður byrjað að kenna aftur í haust. Listinn er mjög langur en tíminn leyfir ekki upptalningu. Ég ætla bara að minna á Orkuveituhúsið, Landspítalann, höfuðstöðvar Íslandsbanka o.fl.

Herra forseti. Þetta er alvörumál því að hér er heilsa fólks undir, bæði heima, á vinnustað og í skólanum. Eins og ítrekað hefur komið fram þá er það um þriðjungur starfsmanna sem finnur fyrir áhrifum af myglu. Þegar heimili fólks verða skyndilega óhæf til íbúðar, og flestir innanstokksmunir með, veldur það líka gífurlegu fjárhagslegu tjóni og sama má segja um opinberar eigur eins og skóla og sjúkrahús sem eru byggðar fyrir skattfé. Ég vil hvetja til þess að skipuð verði sérstök rannsóknarnefnd til að greina hvað hefur mistekist og misfarist í byggingu, viðhaldi og umgengni við hús hér á landi, bæði stofnanir og heimili. Hér er heilsa og fjárhagur einstaklinga og samfélagsins alls í húfi.