störf þingsins.
Herra forseti. Á páskadag bárust okkur fréttir af hryðjuverkaárás á Sri Lanka, árás sem slegið hefur menn óhug úti um allan heim og er stærsta hryðjuverkaárásin síðan árásin á tvíburaturnana í New York var gerð árið 2001. Árásin á Sri Lanka beindist sérstaklega að kirkjum og kristnum þegar páskamessur stóðu yfir. Öfgahópur íslamista myrti rúmlega 250 kirkju- og hótelgesti að morgni páskadags og 500 eru særðir.
Eftir þessi voðaverk hefur athyglin beinst að ofsóknum gegn kristnu fólki. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna falla hundruð kristinna í hverjum mánuði af völdum margvíslegra ofsókna. Kristnir er sá trúarhópur í heiminum sem mest verður fyrir barðinu á ofsóknum. Talið er að 245 milljónir kristinna manna sæti ofsóknum vegna trúar sinnar en ríflega 4.000 létu lífið á síðasta ári af þeim sökum. Í Norður-Kóreu eru 70.000 manns í þrælkunarbúðum vegna kristinnar trúar. Utanríkisráðherra Breta hefur kallað eftir alþjóðlegri úttekt á ofsóknum gegn kristnu fólki um allan heim sem hann segir alvarlegt vandamál sem fari vaxandi.
Við Íslendingar erum þjóð með yfir 1000 ára farsæla sögu kristni í landinu. Við eigum að vera í fararbroddi þegar kemur að því að gagnrýna ofsóknir gegn kristnu fólki í heiminum. Fáir hafa staðið vörð um mannréttindi kristinna hópa í löndum þar sem slíkar ofsóknir eiga sér stað.
Herra forseti. Við eigum að nýta tækifærið sem við höfum nú með setu okkar í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og fordæma ofsóknir gegn kristnum og krefjast úrbóta í löndum þar sem ástandið er verst, eins og í mörgum múslimaríkjum. Barátta fyrir mannréttindum er einnig barátta fyrir trúfrelsi. Tölum kröftuglega gegn ofsóknum gegn kristnum mönnum. Sýnum nú umheiminum að Ísland á sæti í mannréttindaráðinu.