149. löggjafarþing — 97. fundur,  30. apr. 2019.

utanríkis- og alþjóðamál.

863. mál
[15:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spurði líka út í mannréttindamálin, sem að vísu voru rædd áður. Ég tel að við séum ekki að fara á svig við áherslur okkar. Við höfum lagt mesta áherslu á mannréttindaráðið í Genf. Það er alveg rétt. En það útilokar ekki annað. Það verkefni hefur hins vegar sýnt að lítil þjóð skiptir máli og við höfum fengið í rauninni miklu meiri athygli á verk okkar í erlendum fjölmiðlum og erlendis en hér heima. Það er gott til þess að vita að t.d. það sem við höfðum forgöngu um varðandi málefni Sádi-Arabíu hefur örugglega hjálpað til þess að þessum konum var sleppt úr prísundinni sem þær voru í. Þær voru að berjast fyrir mannréttindum. Það er ánægjulegt þegar við fáum þessi jákvæðu viðbrögð sem við erum búin að fá frá alþjóðasamtökum og mannréttindasamtökum sem hafa hvatt okkur mjög til dáða og þakkað okkur fyrir okkar störf hvað þetta varðar.

En hv. þingmaður vísar hér til hafréttarmálanna. Stutta svarið er að það er ekki verið að gefa neinn afslátt í þeim því að allt það sem hv. þingmaður sagði um hafréttarmálin er rétt.

Varðandi leitar- og björgunarmiðstöð er mjög langur vegur frá því að við séum eitthvað að gefa eftir hvað hana varðar. Það er eitt af því sem við leggjum áherslu á í forustuhlutverki okkar í Norðurskautsráðinu, leitar- og björgunarmiðstöð. Það er væntanlegt frumvarp frá hæstv. dómsmálaráðherra sem snýr að slíkum hlutum á Norðausturlandi, þ.e. í Finnafirði. Við tökum frá ákveðið svæði. Það er alveg skýrt að ef við einhvern tímann förum í það að vera með alþjóðlega leitar- og björgunarmiðstöð sé ég engan annan stað en Ísland sem getur sinnt því og enga betri staðsetningu en á Norðausturlandi.

Þannig að stutta svarið er að við erum að vinna þetta bæði með dómsmálaráðuneytinu og Landhelgisgæslunni. Þetta er eitt (Forseti hringir.) af okkar áherslumálum í Norðurskautsráðinu.