149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

sjálfstætt starfandi aðilar í heilbrigðiskerfinu.

[10:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég vil sérstaklega fagna þeirri viðhorfsbreytingu sem ég hef orðið vör við, ekki bara hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins heldur ekki síður þingmönnum, gagnvart sjálfstætt starfandi aðilum í heilbrigðiskerfinu. Það er gott að finna fyrir þeirri afgerandi viðhorfsbreytingu. Við sjáum mjög skynsamlegar yfirlýsingar frá þingmönnum á samfélagsmiðlum sem og annars staðar. En við verðum líka að hafa í huga að það er ekki langt síðan sömu þingmenn höfnuðu tillögu okkar í Viðreisn um 200 millj. kr. til að koma til móts við Sjúkratryggingar Íslands meðan ríkisstjórnin væri að koma sér saman um heilbrigðisáætlun og heilbrigðisstefnu, sem er eðlilegt að hún fái tíma til að vinna. En fólkið á biðlistunum getur ekki beðið lengur. Þjáningum þess verður að linna. Við vitum að það eru biðlistar á biðlista ofan. Þetta leysist ekki nema allir taki höndum saman.

Þess vegna vil ég spyrja formann Sjálfstæðisflokksins og hæstv. fjármálaráðherra hvort hann í ljósi viðhorfsbreytingar Sjálfstæðismanna — og það er gott að menn átta sig á því að rekstrarform á ekki að skipta máli þegar þjónusta er veitt, opinber þjónusta, hægt er að sinna henni eins vel og hún er skilgreind af bæði opinberum aðilum og sjálfstætt starfandi aðilum — muni beita sér sem fjármálaráðherra og einn af forystumönnum flokkanna í ríkisstjórn fyrir því að Sjúkratryggingar fái auknar heimildir, þótt væri ekki nema tímabundið, til að koma til móts við það að leysa biðlista, sem eru ekki síst í liðskiptaaðgerðum, og m.a. til að Sjúkratryggingar fái þá heimild til að semja við sjálfstætt starfandi aðila. Ég skil vel að það eru mismunandi skoðanir innan ríkisstjórnarinnar en getum við komið okkur saman um að gera þetta a.m.k. tímabundið meðan ríkisstjórnin kemur sér saman um heilbrigðisáætlun og heilbrigðisstefnu? Veitum fólki á biðlistum ákveðna von (Forseti hringir.) um að þjáningum þess linni meðan ríkisstjórnin kemur sér saman um þetta.