149. löggjafarþing — 99. fundur, 3. maí 2019.
þungunarrof.
393. mál
Herra forseti. Það á ekki að vera hlutverk stjórnvalda að rýmka svo mikið heimildir til fóstureyðinga sem verða þær mestu á Norðurlöndum ef þetta frumvarp verður að lögum. Málið er mjög umdeilt og viðkvæmt. Það á að vera hlutverk stjórnvalda að tryggja bestu fáanlegu mæðravernd og efnahagslegar og félagslegar aðstæður sem hvetja konur til að standa með lífinu. Lífinu sem guð gaf og hefur heitið okkur að blessa.