149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.

539. mál
[20:15]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Frú forseti. Mannréttindamál á Filippseyjum, löng saga þeirra, hafa verið með ýmsu móti eins og við vitum og glöggt hefur komið fram hér og margoft í umræðunni því að þetta er orðið gamalt mál. Mannréttindi núna eru vægast sagt í lamasessi og það er á allra vitorði. Ég vil nefna að uppi er ólík afstaða mannréttindasamtaka, einkanlega á Filippseyjum sjálfum, um gagnsemi fríverslunarsamnings við núverandi ástand.

Ég hef sjálfur miklar efasemdir um það og raunar höfum við rætt og velt vöngum almennt yfir fríverslunarsamningum við ríki sem eru gölluð að því leyti að okkar mati, eins þótt verið sé að ræða mannréttindamál á fundum sem eru tengdir þeim fríverslunarsamningum. Hvað um það, ég horfi til lengri framtíðar þess tíma þegar ofbeldisstjórn manna á borð við Duterte er að baki og það verður vonandi fyrr en síðar.

Þar með styð ég þessa fullgildingu og nefndarálit hv. utanríkismálanefndar, eins og komið hefur fram, með fyrirvara sem er á nefndarálitinu og lýtur að því að leggja mikla áherslu á stöðu mannréttindamála og mikilvægi þeirra á Filippseyjum umfram annað. Sá fyrirvari er tilraun mín til að benda á að þarna leikur vafi á en við horfum til framtíðar.